Það er magnað að fylgjast með útsjónarsömum foreldrum og hvernig þau tækla „vandamál“ eins og þegar kemur að því að fá börnin á heimilinu til að borða morgunmat.
Móðir nokkur að nafni Shannon deildi því nýverið á samfélagsmiðlum hvernig hún sneri blaðinu algjörlega við – því hún var orðin þreytt á að hlusta á nöldur í börnunum sínum á hverjum einasta morgni. Hún útbjó morgunverðarhlaðborð sem ætti einna helst heima á hóteli og sló vægast sagt í gegn!
Hér ræðir um vagn á hjólum sem geymir stóra morgunkornsskammtara, ferska ávexti og djús í öllum gerðum. Meira að segja mjólkin var í brúsa til að forðast allt óþarfa sull. Eins voru niðurskornir ávextir í litlum handhægum pokum, ef það myndi falla betur í kramið hjá ungviðinu þennan morguninn.
Shannon deildi myndbandi á TikTok sem vakti mikil viðbrögð fólks, þar sem flestir voru á þeirri skoðun að þetta væri algjörlega málið – sama hvort um börn eða fullorðna væri að ræða.
@athomewithshannon Kids Self Serve BREAKFAST STATION!! Best Mom Hack!! #learnontiktok #acousticcovers #fyp #momlife #momhack #organization #breakfast
♬ Say So - Doja Cat / Nicki Minaj