Hér er hinn fullkomni „comfort“-réttur mættur á borðið – makkarónur og ostur með ferskum aspas, steinselju og chiliflögum. Við leggjum ekki meira á ykkur á þessum köldu janúardögum. Uppskriftin er í boði Hildar Rutar sem segir réttinn fljótlegan, einfaldan og djúsí – og krakkarnir elska hann.
Mac and cheese með ferskum aspas (fyrir tvo)
- 200 g makkarónur
- 20 g smjör
- 20 g hveiti
- 2 dl nýmjólk
- 1 dl rjómi
- 200 g rifinn cheddarostur
- 1 dl rifinn parmesanostur + ½ dl til að dreifa yfir
- 2 msk rjómaostur
- cayennepipar
- salt og pipar
- Panko-rasp
Toppað með:
- ferskum aspas
- steinselju
- chiliflögum
- meiri parmesan
Aðferð:
- Sjóðið makkarónurnar eftir leiðbeiningum.
- Bræðið smjör og mjólk í potti við vægan hita. Hellið hveitinu út í og hrærið þar til blandan verður þykk.
- Bætið ostinum saman við og hrærið þar til hann er bráðinn. Kryddið eftir smekk.
- Hrærið makkarónunum út í ostinn og setjið í eldfast form. Dreifið raspi og parmesanosti yfir.
- Bakið í 10 mínútur við 200°C eða þar til raspið er orðið gyllt.
- Skerið ferskan aspas í bita og steikið upp úr olíu. Kryddið með salti og pipar.
- Berið makkarónurnar fram með aspasinum, meiri parmesan, chiliflögum og ferskri steinselju. Hver og einn fær sér svo á sinn disk.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir