Fyrirtækið ÍSAM hefur að höfðu samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum hrökkbrauðið Finn Crisp Sesame & Fibre Round Crispbread.
Ástæðan er sú að varnarefnið etýlenoxíð greindist í vörunni en það er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu. Neysla á matvælum sem innihalda etýlenoxíð getur til langs tíma verið heilsuspillandi, segir í tilkynningu.
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Finn Crisp
Vöruheiti: Sesame & Fibre Round Crispbread
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar frá 24.1.2021 til og með 3.9.2021
Strikamerki: 6410500097099
Nettómagn: 250 g
Geymsluskilyrði: Á ekki við
Framleiðandi: Lantmånnen Cerealia
Framleiðsluland: Finnland