Bræðurnir Einar Ágústsson og Ágúst Arnar Ágústsson, sem jafnan eru kenndir við trúfélagið Zuism eða hópfjármögnunarsíðuna Kickstarter, hafa opnað pítsustaðinn Slæs í Garðabæ.
Félagið Megn ehf. er skráð fyrir vefsíðu Slæs en félagið er í eigu Einars sem einnig er stjórnarmaður. Ágúst Arnar er varamaður í stjórn. Fréttablaðið greindi fyrst frá.
Bræðurnir hafa verið duglegir að rata í fjölmiðla vegna viðskiptaævintýra síðastliðin ár. Fyrst vegna hópfjármögnunar á síðunni Kickstarter en henni var hætt eftir að sérstakur saksóknari hóf rannsókn á bræðrunum. Einar var sakfelldur fyrir að svíkja um 74 milljónir af fjórum einstaklingum árið 2017.
Bræðurnir voru báðir ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við starfsemi trúfélagsins Zuism en þeir neituðu báðir sök við þingfestingu málsins í desember á síðasta ári.
Bræðurnir eru sagðir hafa „styrkt og hagnýtt sér þá röngu hugmynd starfsmanna íslenskra stjórnvalda að trúfélagið Zuism uppfyllti skilyrði fyrir skráningu trúfélags samkvæmt lögum nr. 108/1999, um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög“.
Þannig hafi þeir fengið greiddar 84,7 milljónir króna úr ríkissjóði í formi sóknargjalda, en fjármunirnir voru meðal annars notaðir í eigin þágu þeirra, til vöru- og þjónustukaupa, svo sem hjá veitingahúsum, áfengisverslunum, eldsneytisstöðvum, matvöruverslunum og fjarskiptafyrirtækjum svo og vegna ferðakostnaðar.