Ostur og brauð er samsetning sem við gætum borðað í öll mál – eða svona næstum því. Hér er ostasamloka að hætti kokksins og þykir ótrúlega ljúffeng og ekki síður stórsnjöll. Það var ástralski kokkurinn Guillermo sem birti myndskeið á TikTok, um hvernig ætti að útfæra bestu ostasamloku síðari ára.
Ostasamloka að hætti kokksins
- 1 heilt brauð
- Rifinn ostur
- Steinselja, söxuð
- Smjör
- Hvítlaukur, marinn
- Parmesan
Aðferð:
- Skerið þykkar brauðsneiðar, allt að 4-5 cm þykkar og skerið skorpuna í burtu.
- Skerið niður í miðjuna þannig að hálfgerður vasi myndist í brauðið. Fyllið með rifnum osti.
- Bræðið smjör í potti og bætið við steinselju og hvítlauk, blandið vel saman. Pennslið báðar hliðar á brauðinu með hvítlaukssmjörinu.
- Steikið brauðið á pönnu og notið spaða til að ýta niður á brauðið og fletja út.
- Setjið parmesan-ost á toppinn og steikið þar til gyllt á lit á báðum hliðum.
- Dreypið smá smjöri aftur yfir toppinn og takið af pönnunni.
- Berið fram og njótið.
Skerið brauðið í þykkar sneiðar og skerið skorpuna af.
Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
Skerið niður í miðjuna þannig að hálfgerður vasi myndist í brauðið. Fyllið með rifnum osti.
Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
Bræðið smjör í potti og bætið við steinselju og hvítlauk, blandið vel saman. Penslið báðar hliðar á brauðinu með hvítlaukssmjörinu.
Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
Steikið brauðið á pönnu og notið spaða til að ýta niður á brauðið og fletja út. Setjið parmesan-ost á toppinn og steikið þar til gyllt á lit á báðum hliðum.
Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
Dreypið smá smjöri aftur yfir toppinn og takið af pönnunni. Berið fram og njótið.
Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks