Það er fátt sem toppar ljúffengt lasagna í kvöldmatinn. Hér er fremur einföld lasagnauppskrift sem ætti að slá í gegn á hverju heimili enda geggjuð.
Ljúffengt spínatlasagna með grískri jógúrt
Fyrir fjóra
- 500 g spínat
- 400 g kotasæla
- 400 g grísk jógúrt frá Gott í matinn
- fínrifinn börkur af 1 sítrónu
- sjávarsalt og svartur pipar
- múskat, eftir smekk
- 8 dl tómatapassata
- 4 dl rjómi frá Gott í matinn
- 3 msk. fersk basilíka, fínsöxuð
- 1 stk. hvítlauksrif, marið
- 1 tsk. rauðar chilíflögur
- lasagnaplötur, eins og þurfa þykir, ferskar eða þurrkaðar
- smjörklípa
- 1 poki rifinn mozzarella frá Gott í matinn
Aðferð:
- Stillið ofninn á 200°C.
- Kreistið eins mikið vatn og hægt er úr spínatinu.
- Blandið því saman við gríska jógúrt, kotasælu og sítrónubörk.
- Smakkið til með salti, pipar og múskati.
- Hrærið saman í annarri skál tómatpassata, rjóma, basilíku, hvítlauk og chilíflögur.
- Smyrjið eldfast mót með smjöri.
- Leggið lasagnaplötur yfir.
- Setjið helminginn af spínatblöndunni yfir.
- Leggið lasagnaplötur ofan á og endurtakið með afganginum af spínatblöndunni.
- Leggið lasagnaplötur ofan á og hellið síðan tómatarjómasósunni yfir.
- Sáldrið ostinum yfir og bakið í 40-45 mínútur.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir