Hver elskar ekki gott kjúklinganachos? Hér erum við með uppskrift sem þykir ein sú allra besta og ætti að gleðja mannskapinn.
Einfalt kjúklinganachos á fimmtán mínútum
- 200 g Old El Paso Original Nachips
- 1 msk. Old El Paso Taco Seasoning Mix
- 100 g Old El Paso Sliced Green Jalapeños
- olía til að smyrja bökunarplötu
- 225 g cheddarostur, rifinn
- 300 g eldaður kjúklingur, niðurskorinn
- 175 g frosnar eða niðursoðnar maísbaunir
- 1 jalapeño-chili, skorinn
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200ºC (blástursofn, 180ºC ), gasofn á 6. Leggið bökunarpappír á bökunarplötu og smyrjið með olíu. Dreifið helmingnum af Nachips-flögunum jafnt á bökunarplötuna.
- Blandið saman osti og tacokryddi í litla skál. Sáldrið hemingnum af ostablöndunni yfir flögurnar. Setjið helminginn af kjúklingi, maísbaunum og jalapeñobitum ofan á flögurnar. Endurtakið allt einu sinni.
- Hitið í 10 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
Ábendingar sérfræðinga:
- Frábært með kirusberjatómötum, kóríander, guacamole eða sýrðum rjóma.
- Notið venjulegar tortillur ef þið fáið ekki Nachips.