Klassískt kartöflusalat sem hentar vel með grillsteikunum.
mbl.is/Colourbox
Klassískt kartöflusalat fellur seint úr gildi og hér er einmitt uppskrift að einu slíku sem hentar með flestöllum mat – sérstaklega með grillmatnum yfir sumartímann þegar margir koma saman. Gott er að vita að þumalputtareglan er sú að 1 kíló af kartöflum er miðað við sex til átta manns.
Heimsins besta kartöflusalat
- 750 g soðnar kaldar kartöflur
- 3 dl sýrður rjómi 18%
- 1 dl gott mæjónes
- 3-4 tsk dijonsinnep
- salt og pipar
- 1 búnt steinselja
Aðferð:
- Skerið kartöflurnar í skífur.
- Hrærið sýrðum rjóma, mæjónesi, sinnepi og saxaðri steinselju saman í skál og smakkið til með salti og pipar.
- Veltið kartöfluskífunum upp úr dressingunni og stráið steinselju yfir.