Hér eru hvorki meira né minna en tvær uppskriftir að pítsum sem henta hvaða vikudag sem er – enda hollar, bragðgóðar og einnig gúrme fyrir augað.
Það er líkamsræktar- og matarþjálfarinn Anna Marta sem deilir með okkur uppskriftunum, en hún á heiðurinn að ómótstæðilegu pestói og döðlumauki sem hún framleiðir undir eigin nafni og notar á pítsurnar.
„Ég framleiði vörur undir nafninu ANNA MARTA PESTÓ – sem eru hreinar vörur og innihalda engin aukaefni, allt unnið úr íslenskum hráefnum. Pestóið er vegan, sykurlaust og glúteinlaust og döðlumaukið er einnig vegan, án viðbætt sykurs og glúteinlaust“, segir Anna Marta.
Vörurnar fást í Hagkaup, Krónunni, Nettó, Veganbúðinni, Melabúðinni, Fiskikónginum og Fiskkompaníinu Akureyri. Hægt er að skoða nánar á heimasíðu Önnu Mörtu HÉR eða á Instagram HÉR.
Uppáhalds pítsuuppskriftir Önnu Mörtu
Grænmetispítsa
- Liba original-pitsubotn (finnst í frystideildum flestra verslana)
- 2-3 msk. Döðlumauk ANNA MARTA
- Mozzarella-ostur, að vild
- 1/4 rauðlaukur skorin í sneiðar
- 1/2 kúrbítur skorin í þunnar sneiðar, gott að nota ostaskerara
- 1/2 paprika skorin í bita
- 2-3 msk Pestó ANNA MARTA
Aðferð:
- Smyrjið döðlumauki yfir botninn og setjið mozzarella-ost þar ofan á.
- Bætið grænmetinu yfir botninn og bakið í ofni í 10 mín.
- Setjið síðan ykkar uppáhalds ferska salat yfir og nóg af PESTÓ
Kúrbítspítsa
- Liba original-pitsubotn (finnst í frystideildum flestra verslana)
- 2-3 msk. pestó ANNA MARTA
- 1 kúrbítur, þunnt skorinn
- Mozzarella-ostur, að vild
- 1 avókadó, skorið í sneiðar
- Ferskt grænmeti að eigin vali
Aðferð:
- Smyrjið pestói yfir botninn og setjið mozzarella-ost þar ofan á.
- Bætið þunnt skornum kúrbít yfir og bakið í ofni í 10 mín. Setjið síðan avókadósneiðarnar yfir og einnig er gott að setja meira pestó yfir pitsuna fullbakaða.
Grænmetispítsa með döðlumauki og kúrbít.
mbl.is/Mynd aðsend
Kúrbítspítsa með pestó og avókadó.
mbl.is/Mynd aðsend