Hér erum við að tala um kjúklingarétt eins og þeir gerast bestir. Bragðmikill og alls ekki flókinn. Það er meistarakokkurinn Eyþór Rúnarsson sem á heiðurinn af uppskriftinni sem enginn matgæðingur ætti að láta framhjá sér fara.
Heimasíða Eyþórs.
Teriyakisósa
- 100 ml vatn
- 100 ml sojasósa
- 3 msk hrígrjónaedik
- 55 g döðlur
- 1 hvítlauksgeiri (gróft skorin)
- 30 g engifer (fínt rifið)
- 2 msk. hunang
Aðferð:
- Setjið allt hráefnið nema hunangið í pott og sjóðið við væga suðu í 30 mín.
- Bætið hunanginu út í og maukið allt saman með töfrasprota.
Bakaðar kjúklingabringur í teriyakisósu
- 4 stk. kjúklingabringur
- 2/3 af teriyakisósunni
Aðferð:
- Veltið bringunum upp úr sósunni og látið þær standa í henni í ca 5 tíma.
- Setjið bringurnar í eldfast mót og inn í 150°c heitan ofn í 50 mín. eða þar til þær hafa náð 73°C kjarnhita. Takið þær svo út úr ofninum og setjið álpappír yfir bringurnar og látið þær standa í 15 mín. áður en þær eru bornar fram. Skerið þær svo í þunnar sneiðar og berið fram með afganginum af teriyakisósunni.
Núðlur í sesamsojadressingu með brokkólíi, gulrótum, papriku og rauðlauk
- 50 ml sojasósa
- 2 msk. hunang
- 2 msk. hrísrgjónaedik
- 50 ml sesamolía
- 100 ml ólífuolía
- 1 hvítlauksrif
- 1/3 bréf kóríander
Aðferð:
- Setjið allt saman í matvinnsluvél og maukið saman.
Núðlur
- 250 g eggjanúðlur
- 300 g gulrætur (skrældar og smátt skornar)
- 1 haus brokkólí (smátt skorið)
- 1 stk. rauð paprika (kjarnhreinsuð og skorin í þunna renninga)
- 1/3 stk. rauðlaukur (fínt skorinn)
- ½ bréf kóríander (gróft skorinn)
- ólífuolía til steikingar
- sjávarsalt
- svartur pipar úr kvörn
Aðferð:
- Hitið pönnu með vel af ólífuolíu og steikið allt grænmetið á miðlungshita í 10 mín. eða þar til grænmetið er eldað í gegn og kryddið með salti og pipar.
- Sjóðið núðlurnar eftir leiðbeiningum á pakka. Hellið vatninu af þeim og setjið þær á pönnuna með grænmetinu.
- Slökkvið á hitanum undir pönnunni og bætið 2/3 af dressingunni út á ásamt kóríandernum og blandið vel saman.
- Berið afganginn af dressingunni fram með núðlunum.