Það gerist ekki mikið betra en þetta gott fólk. Hér erum við með eina allsvakalegustu uppskrift sem sést hefur lengi. Við erum að tala um hægeldaða lambaskanka í rauðvínssósu sem þykir svo góð að leitun er að öðru eins.
Lúxus lambaskankar í svívirðilega góðri sósu
Lambaskankar
- u.þ.b. 1 tsk. sjávarsalt
- u.þ.b. ½ tsk. svartur pipar, nýmalaður
- 4 stk. lambaskankar
- 3-4 msk. ólífuolía
- 3 rauðlaukar, afhýddir og skornir í tvennt
- 2 rósmaríngreinar
- 3 timjangreinar
- 200 g sveppir, skornir gróflega
- 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
- 15 g smjör, ósaltað
Rauðvínssósa
- 2 skalottlaukur
- 1-2 msk. olía
- 2 1/2 dl rauðvín eða krækiberjasaft
- 2 rósmaríngreinar
- 2 timjangreinar
- 2 1/2 dl kjúklingasoð eða lambasoð
- 1-2 msk. smjör
- Sjávarsalt
- svartur pipar
Aðferð:
Lambaskankar
- Hitið ofn í 150°C.
- Setjið salt og pipar yfir lambaskankana, látið í eldfast mót ásamt rauðlauk og kryddjurtum og hellið olíu yfir. Eldið í 1½–2 klst. eða þar til kjötið fellur auðveldlega af beininu.
- Hitið pönnu með 1 msk. af olíu og steikið sveppina í 5-6 mín., bætið við hvítlauk og smjöri, steikið áfram í 1 mín. og bragðbætið sveppina með salti og pipar.
- Berið lambaskankana fram með bakaða rauðlauknum, steiktu sveppunum og rauðvínssósu.
Rauðvínssósa
- Skerið skalottlaukinn smátt og steikið upp úr olíu í 3-4 mínútur.
- Bætið við rauðvíni, rósmarín og timjan og sjóðið niður um helming.
- Bætið við soði, sjóðið aftur niður um helming og sigtið svo frá kryddið og laukinn.
- Setjið sósuna aftur í pottinn, smakkið til með salti og pipar, bætið smjörinu við og hrærið vel þar til smjörið hefur bráðnað.