Það finnast margar uppskriftir að bananabrauði, en þessi er mögulega með þeim betri – þá sérstaklega ef þú elskar líka kókos.
Mögulega besta brauðuppskriftin
- 1 dós kókosmjólk
- 1 dl sjóðandi vatn
- 25 g ger
- 150 g kókosmjöl
- 1 tsk salt
- 2 bananar
- 800-900 g hveiti
- olía til að smyrja formið
Aðferð:
- Blandið kókosmjólkinni saman við sjóðandi vatn.
- Sáldrið gerinu út í blönduna í stórri skál og bætið við kókosmjöli og salti.
- Maukið bananana með gaffli og hrærið þá saman með smá sítrónusafa og blandið þeim út í skálina.
- Hrærið hveitið í deigið og hnoðið þar til mjúkt og slétt.
- Setjið deigið í smurt brauðform og látið hefast í klukkutíma.
- Bakið við 175° í 40 mínútur. Látið kólna á bökunarrist.