Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, sem skipar efsta sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík norður býður hér upp á stálheiðarlegan brauðrétt. Þessi uppskrift er einföld en alltaf jafn vinsæl og kemur sterk inn í Kjóstu rétt hjá Heimkaup.
„Ég trúi á brauð. Og hér er komið brauð. Þessi klassíker hefur verið á borðum hjá mér í barnaafmælum hjá stelpunum mínum þremur í 18 ár. Engu hefur verið breytt. Uppskriftin er hvorki flókin né sérstaklega tilkomumikil. En hún er hins vegar heiðarleg. Í henni dansa saman systurnar, skinka, aspas og majónes. Hvað vilja menn meira? Þessi réttur er alltaf rífandi success."
Stálheiðarlegur brauðréttur Þorbjargar
- Rúllutertubrauð
- Ein dós af sveppaosti (rjómaostur 250 g)
- 3-4 matskeiðar majónes
- Bréf af skinku (ca 200 g)
- Lítil dós af aspas
- ½ dl majónes
- ½ dl sýrður rjómi (vel 10%)
- 1 poki af Mozzarella osti
- Paprikuduft
- Grænmetiskrydd
- Hvítlaukskrydd
Aðferð
- Ég blanda sveppaostinum saman við 3-4 matskeiðar af majónesi og hræri saman blöndu.
- Sker skinkuna niður í bita.
- Sker aspas niður í litla bita.
- Blanda svo skinku og aspas út í sveppaostinn. Það má gjarnan pipra blönduna aðeins svo og bæta við grænmetiskryddi. Slatta af grænmetiskryddinu.
- Flet út brauðið og smyr það með blönduninni. Þegar blanda er komin á er brauðið rúllað upp.
- Næst blanda ég saman sýrðum rjóma og majónesi og smyr brauðið að utan með blöndunni. Ég smyr brauðið allt, ekki bara að ofan.
- Því næst er Mozzarella ostinum stráð ofan á brauðið og paprikuduft sett ofan á ostinn. Paprikan gerir ostinn fallega gulan þegar rúllan er komin inn í ofn. Og ég bæti nú yfirleitt hvítlauskryddi ofan á ostinn líka, enda eru hvítlaukur og ostur auðvitað tengd órofa böndum.
- Rúllan fer svo inn í ofn í hálftíma eða svo við 180 gráður.
Hamingjan þarf ekki að vera flókin. Skinka, aspas og majónes með brauði. (Vel hægt að sleppa kjöti fyrir þá sem það vilja)
Ég geri nú aldrei færri en þrjú svona brauð (og oftast 4) enda er heit brauðrúlla sjúklega vinsælt stöff í stælalausum boðum. Og ég hefði haldið að á langri kosninganótt þá geti brauð eins og þetta komið sterkt inn þegar líða fer á kvöldið. Jafnvel sem miðnæturbiti.
Njótið vel og heiðarlega.
Kær kveðja, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir