Alþjóðlegi kaffidagurinn var haldinn hátíðlegur hér á landi þann 29. september sl. Hildur Rut lét ekki sitt eftir liggja og fagnaði deginum með þessum æðisgengna kaffikokteil – eða espresso margarita.
Svona fagnaði Hildur Rut alþjóðlega kaffideginum
- 3 cl Tequila blanco
- 3 cl Cointreau
- 3 cl kaffisíróp
- 2 cl safi úr lime
Kaffisíróp
Aðferð:
- Hristið saman tequila, Cointreau, kaffi sírópi, safa úr lime og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur.
- Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið.
Kaffisíróp
- Blandið saman kaffi og sykri i í pott.
- Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið.
- Hellið sírópinu ofan í flösku eða krukku í gegnum sigti og geymið í ísskáp. Passið að sírópið sé orðið kalt þegar þið notið það í kokteilinn.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir