Hér er á ferðinni réttur sem þú bráðnar hreinlega í munni og skynfærin fara á flug! Kjúklingaréttur með parmaskinku, pestó, mozzarella og döðlum. En rétturinn kemur úr smiðju Önnu Mörtu sem framleiðir sitt eigið pestó og döðlumauk undir eigin nafni.
Kjúklingarétturinn sem bráðnar í munni
- 8 kjúklingabringur
- 12 döðlur skornar
- 1-2 dl rifinn ostur
- 8 skeiðar pestó ANNA MARTA
- 8 sneiðar parmaskinka
- Gróft salt
- Sítrónupipar
- Fersk basilika
Aðferð:
- Ofninn stilltur á 200 gráður.
- Kjúklingabringurnar skornar í tvær sneiðar. Á aðra bringuna er settar tvær döðlur skornar niður og ein parmaskinka. Því næst kemur 1 msk mozzarella og 1 skeið pestó. Hin helmingurinn af bringunni er sett yfir og prjónn settur í miðja bringuna til að halda henni saman.
- Bringunum er svo raðað í eldfast mót. Gott að krydda með grófu salt og sitrónupipar.
- Þegar rétturinn er tilbúin er frábær að toppa hann með ferskri basiliku.
- Borið fram með góðu salati.