Bragðgóður kokteill sem kemur manni í jólaskap, að sögn Hildar Rutar sem færir okkur blöndu af gini, trönuberjasafa, rósmarín og appelsínu sem gera drykkinn jólalegan og gómsætan.
Drykkurinn sem keyrir aðventuna í gang
- 60 ml Roku gin
- 1,3 dl trönuberjasafi
- 2 ml sykursíróp
- Nokkrir dropar angostura bitter
- Rosmarín stilkur
- Appelsínu sneið
- Klakar
- Skreyta með trönuberjum eða rifsberjum
Aðferð:
- Hellið gini, trönuberjasafa, sykursírópi og bitter í fallegt glas og hrærið saman.
- Fyllið glasið af klökum og setjið rósmarín stilk og appelsínusneið.
- Skreytið með trönuberjum og njótið.
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir