Hér er á ferðinni uppskrift að afbragðsgóðri jóla-bollu, smekkfull af góðum berjum og ávöxtum sem allir munu elska. Það mætti segja að þetta sé uppáhalds jóla-bollan okkar allra, því ekki er vitað til þess að einhver hafi neitað sér um glas.
Uppáhalds jólabollan okkar
- Sítróna
- Jarðaber
- Vínber
- Bláber
- Trönuberjasafi
- Sódavatn
- Fersk mynta
- Klakar
- Áfengi ef vill
Aðferð:
- Skerið sítrónu í sneiðar og setjið í stóra skál.
- Bætið við jarðaberjum, vínberjum og bláberjum.
- Hellið því næst jafnt af trönuberjasafa og sódavatni.
- Stráið ferskri myntu yfir.
- Bætið við nóg af klökum og áfengi fyrir þá sem vilja gera fullorðins útgáfu af bollunni.