Það er fátt betra en súkkulaðimoli með góðum kaffidrykk – og enn betra ef drykkurinn inniheldur súkkulaði. Hér sjáum við uppskrift að espresso sem svalar súkkulaðiþörfinni.
Espresso sem svalar súkkulaðiþörfinni
- 50 ml súkkulaði að eigin vali (t.d. tvær plötur af After Eight)
- 50 ml tvöfaldur espresso
- 50 ml vodka
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið örlítið vatn saman við til að þynna það.
- Setjið öll hráefnin í kokteilhristara, ásamt handfylli af klaka.
- Hristið vel þar til freyðir. Sigtið drykkinn ofan í kælt martiniglas.
- Skreytið með súkkulaði að eigin vali.