Hér er á ferðinni fiskréttur sem enginn getur staðist! Ómótstæðileg uppskrift að þorskhnökkum í boði Kolbrúnar Ýrar hjá Keto-þjálfun. Pestó, paprika, beikon og salatostur eru á meðal hráefna sem gera réttinn svona dásamlegan.
Fiskrétturinn sem enginn getur staðist
- Þorskhnakkar (miða við ca 200 g á mann), skornir í bita
- spínat
- paprika
- grænt pestó, ég nota alltaf frá Sóma eða Önnu Mörtu – hvort tveggja ferskt og gott
- salatostur í kryddlegi (hét áður fetaostur)
- beikon, 1 pakki
- salthnetur (má sleppa)
- krydd að eigin vali – svartur pipar eða jafnvel sítrónupipar
Aðferð:
- Steikið beikonið í ofni eða á pönnu.
- Setjið spínat í botninn á eldföstu móti.
- Skerið niður papriku og setjið yfir spínatið.
- Raðið þorskhnökkunum í mótið og kryddið.
- Setjið matskeið af grænu pestói yfir hvern og einn fiskbita og stráið einni krukku af salatosti (feta ostur) yfir allt fatið.
- Setjið inn í ofn við 200° í ca 30 mínútur. Eftir 15 mínútur, takið þá út og setjið beikonið (niðurkurlað/skorið í bita) yfir allt, og toppið með salthnetum til að fá smá „kröns“. Bakið áfram í aðrar 15 mínútur.
- Athugið að eldunartíminn getur verið mismunandi, taka þarf mið af ofninum. Einnig ef þú vilt fiskinn minna eldaðan, þá má stytta í 20 mínútur. En ég elda hann í 30-40 mínútur.