Fljótleg og fjölskylduvæn uppskrift að kjötbollum sem stundum eru kallaðar pizzubollur. Sniðugur réttur í matarboðum þar sem börn og fullorðnir koma saman. Matur sem kætir og fyllir alla og er einstaklega umvefjandi á köldum vetrarkvöldum.
Kjötbollur í rjóma tómatsósu með spagettí
- 2 stk. hvítar formbrauðsneiðar
- 3⁄4 dl matreiðslurjómi eða rjómi
- 500 g nautahakk
- fínrifinn börkur af einni sítrónu
- 4 msk. parmesanostur
- 1 msk. þurrkað óreganó
- 1⁄2 msk. sjávarsalt
- 1⁄2 tsk. svartur pipar
- ólífuolía og smjör
Sósa:
- 1 stk. laukur, fínsaxaður
- 2 stk. hvítlauksrif, marin
- 1⁄2 stk. kjúklingakraftsteningur, mulinn
- 8 dl tómatpassata
- 2 1⁄2 dl matreiðslurjómi eða rjómi
- 4 msk. tómatpúrra
- handfylli af ferskri basilíku, gróft söxuð
- sjávarsalt og svartur pipar
- 500 g spagettí
Aðferð:
- Setjið formbrauðsneiðarnar í stóra skál og hellið rjómanum yfir. Látið þær sjúga vökvann í sig.
- Setjið hakk, sítrónubörk, óreganó, parmesanost, salt og pipar saman við.
- Blandið saman með höndunum og mótið kjötbollur. Stærð fer eftir smekk en ágætt að miða við stærð á golfkúlum.
- Hitið smá olíu og smjör á pönnu og steikið bollurnar í skömmtum. Geymið.
- Setjið smá meiri olíu og smjör á pönnuna og mýkið laukana í u.þ.b. 5 mínútur. Setjið kjúklingakraftsteninginn saman við.
- Hellið tómatpassata, rjóma, tómatpúrru og basilíku út á pönnuna. Hrærið og látið sjóða í 2 mínútur. Smakkið til með salti og pipar.
- Setjið loks bollurnar út í sósuna og látið malla á vægum hita undir loki í 10 mínútur.
- Sjóðið á meðan spagetti samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Berið kjötbollurnar fram með spagettí og auka parmesanosti eða öðrum rifnum og bragðsterkum osti.
Höfundur uppskriftar: Erna Sverrisdóttir