Hið fullkomna millimál ef þið spyrjið okkur! Hrökkkex stútfullt af góðum fræjum sem koma meltingunni af stað. Frábært til að grípa í á milli mála í amstri dagsins.
Einfalt en fullkomið millimál
- 1 dl haframjöl
- 1 dl hörfræ
- 1 dl graskersfræ
- 1 dl sólblómafræ
- 1 dl sesamfræ – bæði hvít og svört
- 1 matskeið chiafræ
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 msk. salt
- 50 g rúgmjöl
- 175 g hveiti
- 1 dl repjuolía
- 1¾ til 2 dl vatn
Aðferð:
- Hrærið öllum hráefnum saman í skál.
- Skiptið deiginu í tvo hluta og fletjið út með bökunarpappír undir og ofan á. Leggið því næst á bökunarplötu.
- Skerið hvorn deighluta í sirka 20 bita og bakið þar til gyllt og stökkt við 200° í 20 mínútur.
- Brjótið hrökkkexið í sundur og látið kólna á bökunarplötu.