Bananabrauð með leynihráefni

Bananabrauð eru þau allra bestu að okkar mati.
Bananabrauð eru þau allra bestu að okkar mati. mbl.is/Pinterest

Við elskum bananabrauð – þá sérstaklega nýbökuð. Hér er uppskrift að æðislegu bananabrauði með leynihráefni sem á eftir að koma á óvart.

Bananabrauð með leynihráefni

  • 3 þroskaðir bananar
  • 120 g ljóst tahin
  • 1 dl ólífuolía
  • 2 egg
  • 100 g sykur
  • 250 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk kardemomme
  • ½ tsk sjávarsalt
  • 30 g valhnetukjarnar
  • 1 L brauðform

Aðferð:

  1. Maukið banana í skál.
  2. Pískið tahin, ólífuolíu, egg og sykur saman þar til ljóst og létt. Bætið maukuðu bönunum saman við og pískið aftur.
  3. Bætið hveiti, lyftidufti, kardemomme og salti í deigið.
  4. Hellið deiginu í smurt brauðform og stráið grófsöxuðum valhnetum yfir.
  5. Bakið við 200° á blæstri í 45 mínútur, eða þar til bakað í gegn.
  6. Látið kólna.
  7. Toppið brauðið með tahin, hunangi, söxuðu súkkulaði og eða ferskum hindberjum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert