Vatnsdeigsbolla + kókosbolla = kókosbollu bolla! Einföld og ómótstæðilega góð fylling sem hægt er að útbúa fyrir heimabakaðar vatnsdeigsbollur eða tilbúnar bollur sem fást í næstu verslun.
Kókosbollu bollur
- 8 stk. vatnsdeigsbollur
- 500 ml rjómi frá Gott í matinn
- 4 stk. kókosbollur
- súkkulaðiglassúr
Aðferð
- Bakið vatnsdeigsbollur eða kaupið tilbúnar bollur í næstu verslun.
- Þeytið rjóma og setjið til hliðar.
- Stappið kókosbollur í skál með gaffli.
- Fyllið bollurnar með smá súkkulaðiglassúr, þeyttum rjóma og kókosbollum.
- Setjið glassúr eða flórsykur yfir bollurnar.