Hið fullkomna snakk Helgu Möggu

Sjúllað gott skyrsnakk með hindberjum.
Sjúllað gott skyrsnakk með hindberjum. mbl.is/Helga Magga

Hér er hið fullkomna snakk ef þig langar í eitthvað en samt eiginlega ekki neitt – að sögn Helgu Möggu sem á heiðurinn að uppskriftinni.

Skyrsnakk sem snýr þér í hringi

  • 250 g hreint skyr eða með vanillubragði
  • 1 msk. hnetusmjör (10 g)
  • 1 msk. sukrin gold (10 g)
  • 100 g frosin hindber

Aðferð:

  1. Blandaðu skyrinu, hnetusmjörinu og sýrópinu saman í skál. Ef þú ert með vanilluskyr er óþarfi að nota sýrópið.
  2. Settu þvín æst bökunarpappír í fat og dreifðu skyrblöndunni á fatið, reyndu að hafa blönduna frekar þunna, um 5 mm - það er þægilegra að borða þetta ef þetta er ekki of þykkt.
  3. Settu svo hindberin ofan á og inn í frysti í 2-3 klst.
  4. Taktu út og skerðu í litla bita, láttu bitana standa á borði í nokkrar mínútur áður en þú bítur í þá.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert