Sumar, sól og ískaldir kokteilar! Erum við ekki að setja hugann okkar þangað – löngu komin með nóg af veðurfréttunum hér heima. Hér er kokteill sem mun fleyta þér langt á hvíta strönd með þennan drykk í hönd.
Drykkurinn sem tekur þig með á ströndina
- 4 hlutar ávaxtaríkt og freyðandi rósavín
- 4 hlutar dry gin
- 2 hlutar Coco Lopez kókosrjómi
- 4 hlutar ananassafi
- 1 hluti lime safi
- Til skrauts: Ananas og þurrkaður kókos
Aðferð:
- Setjið gin, kókosrjóma, ananassafa og limesafa í hristara fylltan af klaka. Hristið vel. Sigtið yfir glas fyllt af ís.
- Toppið með rósavíni.
- Skreytið með ananas og þurrkuðum kókos.