Það er gott að eiga millimál eða snakk sem þetta í skápunum heima. Eitthvað sem hentugt er að grípa í þegar hungrið læðist aftan að manni.
Millimálið sem mittið elskar
- 2½ dl haframjöl
- 1 dl sesamfræ
- 1 dl hörfræ
- 1 dl sólkjarnafræ
- 1 dl graskersfræ
- 2½ dl hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- 2 tsk. salt
- 2 dl vatn
- 1 dl olía (t.d. sesamolía)
Aðferð:
- Hrærið öll þurrefnin saman. Bætið því næst vatni og olíu saman við.
- Skiptið deiginu í tvo helminga. Takið hvorn helming fyrir sig og leggið á bökunarpappír. Leggið annan bökunarpappír yfir og fletjið út í ferning.
- Bakið í 15-20 mínútur við 180°C.
- Skerið með beittum hníf í passlegar stærðir.