Það er varla hægt að sleppa góðri snúðauppskrift úr hendi – og er þessi hér með þeim betri, fyrir utan hversu einfaldir þeir eru í framreið. Uppskriftin kemur frá Helgu Möggu sem segir vanillukremið setja punktinn yfir i-ið en mælir með að setja bara krem á þá snúða sem á að borða hverju sinni og geyma kremið í ísskáp ef ætlunin er að geyma þá yfir nótt.
Kanilsnúðar með æðislegu vanillukremi
14-16 snúðar
- 2 bollar hveiti/275 gr
- 1 ½ bolli hreint Ísey skyr/365 gr
- 1 msk. lyftiduft/15 gr
- Smá salt (½ tsk)
- 2 msk. eggjahvíta/30 gr til penslunar
- 2 msk. sykur (eða gervisæta)
- 1 msk. kanill
Vanillukrem
- 1 lítil dós Ísey vanilluskyr
- 50 ml mjólk (ég notaði léttmjólk)
Aðferð:
- Setjið hveitið, skyrið, lyftiduftið og saltið saman í skál og hnoðið saman, mér finnst þægilegast að nota hrærivélina í þetta en það er líka hægt að hræra þetta í höndunum.
- Fletjið deigið út í ferhyrning. Penslið deigið með eggjahvítu, stráið kanilsykrinum yfir og rúllið deiginu upp.
- Skerið niður í 14-16 snúða. Raðið á bökunarpappír með hæfilegu bili á milli snúða.
- Bakið við 180 gráður í 15 -18 mín. Ég nota blástursofn.
- Vanillukremið er gert með því að blanda saman Ísey vanilluskyri og mjólk. Það er hægt að setja vanillustevíu út í það ef fólk vill fá meiri sætu eða vanilluduft.
Það er gott að hafa í huga að þessi uppskrift er gerð með það í huga að bæta próteini í næringuna, deigið á það til að vera klístrað og blautt, bætið þá aðeins meira hveiti við.