Við rákumst á þessar litlu pítsur með ómótstæðilegum áleggjum, sem munu án efa koma öllum á óvart. Þessar eru fullkomnar á grillið í sumar eða í pítsaofninn, enda með ómótstæðilega hráefna samsetningu.
Pítsurnar sem koma fólki á óvart
- 10 g ger
- 3 dl vatn
- 1 tsk. salt
- 100 g durum hveiti
- 350 g pizzamjöl eða tipo 00
- 2 msk. ólífuolía
- 250 g mascarpone
- 5 nektarínur
- 50 g ristaðir heslihnetukjarnar
- 4 msk. fljótandi hunang
- Smá ferskt timjan
- Vanilluís ef vill
Aðferð:
- Hrærið gerinu út í vatnið. Bætið salti og durumhveiti út í og látið standa í 15 mín. Hveiti hrært smá í einu út í og deigið hnoðað vel þar til það er mjúkt og teygjanlegt.
- Skiptið deiginu í 4-6 litlar kúlur og veltið þeim í ólífuolíu. Setjið þær á ofnplötu, setjið plastfilmu yfir og inn í ísskáp til næsta dags.
- Rúllið deiginu út í litlar kringlóttar pítsur á hveitistráðu borði. Passið að ýta ekki loftinu úr deigkúlunum.
- Smyrjið pítsabotnana með mascarpone. Setjið nektarínur í mjóa báta ofan á og stráið grófsöxuðum hnetum og smá timjani yfir.
- Dreifið hunangi yfir og grillið pítsurnar á óbeinum hita á pizzasteini eða bökunarplötu í 6-8 mín. Pítsurnar eru tilbúnar þegar botninn er gullinn og stökkur, og nektarínurnar örlítið karamelluseríðar.
- Berið fram strax með vanilluís og auka hunangi.
Uppskrift: Kop & kande