Við rákumst á þessa girnilegu gulrótakökuuppskrift á Instagram síðu Hjá Höllu – en kakan er í boði á veitingastaðnum þeirra í Grindavík og þykir syndsamlega góð. Uppskriftin kemur upphaflega frá mömmu hennar Höllu, sem og svo margir aðrir grunnar á réttum þar á matseðli.
Gulrótaka Höllu sem þykir syndsamlega góð
- 1 ½ bolli hveiti
- 1 bolli sykur
- 1 tsk matarsódi
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk kanill
- ¾ bolli olía
- 2 egg
- ½ tsk salt
- 1 bolli fínt saxaðar gulrætur
- ½ bolli ananaskurl + safinn
- 1 tsk vanilludropar
Krem
- 200 g rjómaostur
- 1 msk mjúkt smör
- 1 tsk vanilludropar
- 2 bollar flórsykur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°.
- Blandið öllu saman og hrærið í 2-3 mínútur.
- Setjið bréf í botn á 25x25 cm formi og hellið deiginu í formið.
- Bakið í 25 mínútur.
- Krem: Þeytið allt vel saman þar til ljóst og létt og smyrjið á kökuna.