Það kennir ýmissa grasa í matarheiminum og eitt af því sem vekur sífellt meiri athygli á okkar breiddargráðu, eru japanskar matpönnukökur. Rétturinn kallast okonomiyaki og bragðast hreint dásamlega – en hver og einn ræður ferðinni varðandi fyllingar og álegg.
Japanskar pönnukökur
Pönnukaka
- 150 g hveiti
- 50 g panko- eða sælkerarasp
- ¼ tsk. salt
- ¼ tsk. sykur
- 2 dl kalt soð eða vatn
- 4 egg
- 500 g toppkál
- 1 búnt vorlaukur
- ½ msk. olía
Fylling
- 1 laukur eða 2 skalottlaukar
- 1 hvítlauksgeiri
- 10 g ferskt engifer
- 1 ferskur chilipipar
- ½ msk. olía
- 350 g nautahakk
- Salt og pipar
- 2-3 msk. söxuð steinselja eða kóríander
Okonomiyaki-sósa
- 1 bolli tómatsósa
- 2 msk. fljótandi hunang
- 1½ msk. Worcestershire sósa
- 1 msk. sojasósa
Majónes
- 75 g majónes
- 1 msk. hrísgrjónaedik (eða eplaedik)
- ½ msk. sykur
Aðferð:
- Pönnukökur: Blandið hveiti, raspi, salti og sykri saman í skál og hrærið köldu soði eða vatni saman við. Hrærið eggin saman við, eitt í senn. Skerið toppkál og vorlauk smátt og blandið saman við deigið. Geymið 1 dl vorlauk til skrauts.
- Hitið pönnu (18-20 cm) með svolítilli olíu og skiptið deiginu í fjórar 2 cm þykkar pönnukökur - þær eiga að fá 3-4 mín. á báðum hliðum.
- Fylling: Hreinsið og skerið lauk, hvítlauk, engifer og chilipipar smátt.
- Brúnið kjötið á heitri pönnu með olíu. Bætið fínt söxuðu hráefninu út í og steikið á meðan hrært er í í 5-10 mín. Kryddið með salti og pipar og bætið saxaðri steinselju eða kóríander út í.
- Okonomiyaki sósa og majónes: Hrærið hráefninu saman.
- Berið kjötið á pönnukökurnar og dreypið sósu og majónesi yfir. Skreytið með vorlauk og berið okonomiyaki strax fram.