Veitingastaðurinn Óx hefur hlotið Michelin-stjörnu. Frá þessu var greint í Stafangri í Noregi rétt í þessu.
Nýr leiðarvísir Michelin fyrir Norðurlöndin var tilkynntur í Stafangri í dag. Þráinn Freyr Vigfússon, eigandi Óx, tók við stjörnunni.
Nú eru því tveir veitingastaðir á Íslandi með hina eftirsóttu Michelin-stjörnu en auk Óx, er staðurinn Dill einnig með stjörnu.
Óx hefur undanfarin ár verið á sérstökum lista yfir veitingastaði sem Michelin mælir með á Norðurlöndunum.