Stjörnukokkurinn og þáttastjórnandinn Gordon Ramsay er búinn að koma tvisvar í heimsókn í Þrastalund, bæði til þess að snæða og til þess að fá sér kaffi.
Þetta staðfestir Dagný Sif Jónsdóttir, eigandi staðarins. Hún hafði vitað að hann væri á leiðinni því hún þekkir til leigutakanna að Soginu, þar sem Gordon Ramsay er að veiða um þessar mundir.
„Ég er búin að ná að spjalla mikið við hann og hann er mjög almennilegur og ýtir manni ekkert frá sér heldur er mjög til í að tala við mann.“
Frægðarsól Ramsay reis hæst með þáttunum Hell's Kitchen á sínum tíma, þar sem hann þótti nokkuð harðbrjósta þegar kom að því að dæma keppendur.
„Hann er alls ekki eins og maður sér hann í þáttunum, það er bara karakter sem hann setur upp.“
Dagný segir Ramsay hafa hrósað Þrastalundi hástert fyrir góða þjónustu. „Það er þvílíkur heiður að fá að hitta hann og vera í kringum hann.“
Ramsay og félagar fá næði öðru megin í salnum þegar þeir koma í Þrastarlund, en Dagný segir Ramsay engu að síður mannblendinn.
Hún vonast til þess að fá hann aftur í heimsókn áður en hann snýr heim úr veiðiferð sinni, til þess að kveðja hann.