Það er enginn annar en Jamie Oliver sem á heiðurinn að þessu girnilega kjúklingasalati sem engan svíkur. Hér um ræðir salat sem gleður ekki bara bragðlaukana, heldur líka augað og það kunnum við vel að meta.
Kjúklinga satay-salat að hætti nakta kokksins
- 1 x 220 g dós af ananashringjum í safa
- 200 g hrísgrjónanúðlur
- 320 g frosið grænmeti
- 1 hvítlauksgeiri
- 1 ferskur rauður chilli
- 2 lime
- 2 msk. teriyaki sósa
- 2 msk. hnetusmjör
- 4 kjúklingalæri
- 1 búnt af fersku kóríander
- 1 búnt af ferskri myntu
- 1 tsk. sesamolía
- 2 tsk. sesamfræ
Aðferð:
- Hitaðu pönnu á meðalhita.
- Taktu ananashringina úr dósinni og geymdu safann.
- Setjið hrísgrjónanúðlurnar í stóra hitaþolna skál, setjið grænmetið saman við og hellið sjóðandi vatni yfir. Látið standa í 5 mínútur og hellið síðan vatninu frá.
- Afhýðið og rífið 1 hvítlauksrif, ½ rauðan chilli (fræ ef vill) og börkinn af 2 lime í skál. Bætið við 2 matskeiðum af teriyaki sósu, 2 matskeiðum af hnetusmjöri og ananassafa og kreistið síðan yfir safann úr limeunum. Blandið öllu vel saman.
- Setjið ananashringina á pönnu þar til þeir eru gylltir og takið svo til hliðar.
- Setjið þriðjung af hnetusósunni yfir 4 kjúklingalæri og nuddið vel. Steikið lærin í 4 mínútur á hvorri hlið, eða þar til dökk og elduð í gegn.
- Saxið ananashringina gróflega og setjið á fat. Skerið ferskan kóríander (30g) fínt, ásamt myntunni í sneiðar og bætið svo á fatið, geymið smá handfylli til skreytingar. Bætið grænmetinu og núðlunum saman við og blandið öllu saman.
- Skerið kjúklinginn í 1 cm þykkar sneiðar, dreypið 1 tsk. af sesamolíu og 2 tsk. af sesamfræjum yfir, kryddið og blandið vel saman.
- Bætið kjúklingnum saman við núðlurnar, dreifið kryddjurtunum yfir og ásamt smátt skornum ferskum rauðum chilli.
Við elskum góð kjúklingasalöt og þetta hér er geggjað!
mbl.is/Jamie Oliver