Börnin elska bananabrauð og það gerum við hin líka. Þetta ómótstæðilega brauð er fullkomið í nestisboxið fyrir alla fjölskylduna. Það má auðveldlega uppfæra uppskriftina með því að bæta við valhnetum, þurrkuðum ávöxtum eða súkkulaði ef því er að skipta.
Bananabrauðið sem börnin elska
- 125 g ósaltað smjör
- 2 stór egg
- 4 vel þroskaðir bananar
- 2 msk. fljótandi hunang
- 2 msk. epladjús
- 250 g hveiti
- Klípa af kanil
- 50 g pekanhnetur, má sleppa
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180 gráður.
- Smyrjið bökunarmót að innan með smjöri.
- Setjið smjörið í skál og notið trésleif til að mýkja það upp þar til rjómakennt. Bætið eggjunum saman við smjörið. Maukið 3 banana og blandið saman við, með gaffli.
- Bætið hunangi og epladjús saman við – og dragið því næst fram sleif til að bæta við hveitinu og kanilinum. Saxið hneturnar smátt og bætið saman við.
- Hellið blöndunni í bökunarmótið og skerið síðasta bananann niður í litla bita og dreifið yfir deigið. Bakið í 40-50 mínútur þar til gyllt og bakað í gegn.
- Leyfð brauðinu að kólna örlítið áður en þið skerið það niður.
Uppskrift: Jamie Oliver