Matvöruverslunin Krónan hefur ákveðið að frysta verð á matvörum á borð við samlokubrauð, kjúklingalæri og nautgripahakk auk verðs á ýmsum nauðsynjavörum, svo sem salernispappír og dömubindum.
Greip matvöruverslunin til þessa til þess að leggja baráttunni gegn verðbólgu lið, eins og fram kom í tilkynningu fyrr í dag.
Vörurnar, sem eru 240 talsins, eru allar frá vörumerkjum Krónunnar og First Price. Hér má sjá tæmandi lista yfir vörurnar en einnig má nálgast þær í snjallverslun Krónunnar, með því að slá upp First Price eða Krónan í leitarvél.