Má bjóða ykkur vefju sem sameinar morgunmat og hádegismat í einum bita? Þessi vefja er stútfull af orku sem nýtist ykkur vel inn í daginn.
Vefjan sem er stútfull af orku
- 2 stór egg
- Ólífuolía
- 10 g cheddar ostur
- 1 tortilla kaka
- 1/2 búnt af ferskri basiliku
- Chili sósa
- 200 g tómatar
Aðferð:
- Setjið eggin í skál og kryddið með sjávarsalti og svörtum pipar. Pískið saman með gaffli.
- Dreypið smávegis af ólífuolíu á heita pönnu á meðalhita, og þurrkið það mesta af með eldhúspappír. Setjið eggin út á pönnuna og veltið pönnunni til að eggin leki út í allar hliðarnar.
- Rífið cheddar ostinn yfir og látið bráðna í tæpa 1 mínútu og takið því næst ommelettuna af pönnunni.
- Hitið tortilla kökuna á pönnunni á báðum hliðum. Leggið kökuna ofan á ommelettuna og flippið því næst hvoru tveggja aftur yfir á pönnuna, svo að kakan snúi á pönnunni.
- Stráið söxuðum basil yfir og dreypið chili sósunni einnig yfir.
- Skerið tómatana niður og dreifið yfir eggjakökuna ásamt klettasalati ef vill. Saltið og piprið.
- Setjið bökunarpappír á borðið og rennið eggjakökunni yfir á pappírinn. Notið síðan pappírinn til að rúlla upp tortillunni og skerið til helminga.
Uppskrift: Jamie Oliver