Klikkaðir kjúklingaleggir með geggjaðri kryddblöndu

Kjúklingaleggir af bestu gerð.
Kjúklingaleggir af bestu gerð. mb.is/Good Good

Við elskum góðar kjúklingauppskriftir og þessi hér er með þeim sætari sem við höfum smakkað á - með sykurlausum aprikósugljáa. Hér er upplagt að bera fam réttinn með hrísgrjónum eða góðu brauði.

Bragðgóðir kjúklingaleggir með aprikósugljáa

  • 1 bakki kjúklingaleggir
  • 1/2 bolli Apricot Jam frá Good Good
  • 2 msk. eplaedik
  • 2 tsk. dijon sinnep
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1/2 tsk. cayenne pipar
  • 1/2 tsk. soja sósa
  • 1/2 tsk. salt
  • 1/4 tsk. svartur pipar
  • 2 msk. söxuð steinselja

Aðferð: 

  1. Hitið ofninn á 180 gráður.
  2. Pískið saman í stóra skál - aprikósu sultunni, eplaedikinu, sinnepinu, hvítlauksduftinu, cayenne piparnum, soja sósunni, salti og pipar. Marinerið kjúklinginn í 15 mínútur. 
  3. Setjið kjúklinginn og marineringuna í eldfast mót. 
  4. Setjið inn í ofn í 40 mínútur og stillið þá ofninn á grill í fimm mínútur. Passið þó að brenna ekki kjúklinginn. 
  5. Látið standa í fimm mínútur og stráið steinseljunni yfir áður en borið er fram. 

Uppskrift: Good Good

mbl.is/Good Good
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert