Hinn fullkomni hversdagsmatur er hér á borðum - þá er við höfum sáralítinn tíma og nennum hreinlega ekki að fara út í flókna eldamennsku. Pastaréttur sem þú riggar upp á tíu mínútum og inniheldur einungis fimm hráefni.
Pastarétturinn sem þú riggar upp á tíu mínútum
- 250 g pasta
- 3 msk. ólífuolía
- 2 hvítlauksgeirar
- 150 g krukka af grænum ólífum
- 8 msk. passata
Aðferð:
- Eldið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Skerið hvítlaukinn smátt og steikið í nokkrar mínútur í olíunni þar til hann mýkist.
- Saxið ólífurnar og geymið saltvatnið. Bætið ólífunum á pönnuna, kryddið og látið malla í 2 mínútur.
- Hrærið passata og saltvatninu saman við og eldið áfram í 5 mínútur. Bætið því næst pastanu saman við sósuna og berið fram strax.
Uppskrift: Jamie Oliver