Pósthús mathöll opnar á föstudaginn

Gamla pósthúsið þar sem mathöllin verður.
Gamla pósthúsið þar sem mathöllin verður. mbl.is/sisi

Mathöllin í gamla pósthúsinu sem stendur við Pósthússtræti 5 í miðbæ Reykjavíkur verður opnuð á föstudaginn, að því er fram kemur í fjárfestakynningu Reita vegna uppgjörs þriðja ársfjórðungs.

Gestir mathallarinnar geta eflaust fundið sér eitthvað við hæfi en veitingastaðirnir sem þar má finna eru níu talsins og verður meðal annars boðið upp á indverska matargerð, kokteila og asískt grill.

Nöfn staðanna eru eftirfarandi: Bangrah, Pizza Popolare, Fuku Mama, Yuzu Burger, Finsen, Enoteca, Drykk bar, Mossley og Djusi Sushi.

Í frétt Morgunblaðsins sem birtist undir lok ársins 2020 kom fram að staðurinn ætti að vera á fyrstu hæð hússins og að sú hæð ætti að rúma samtals 161 gest í sæti en í kjallara hússins væri gert ráð fyrir sætum fyrir 28 til 50. Í heildina ætti því að vera pláss fyrir allt að 211 gesti ef það gengur eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert