Að eiga gott granóla inni í skáp er eins og að eiga sælgæti út á ab-mjólkina á morgnana. Þetta granóla er úr smiðju Jönu sem gefur uppskriftinni fullt hús stiga.
Heimagert granóla að hætti Jönu
- 1 dl hunang
- 1/2 dl kókosolía
- 3 msk. kakósmjör
- 1 msk. vanilla
- 1 tsk. salt
- 2 tsk. kanilduft
- 1/2 tsk. engiferduft
Þurrt
- 6 dl haframjöl
- 2 dl pekanhnetur, gróft saxaðar
- 2 dl sólblómafræ
- 1 dl kókosmjöl
- 1 dl graskersfræ
Aðferð:
- Hitið í potti við lágan hita – hunang, kókosolíu, kakósmjör, vanillu, salt og krydd.
- Setjið öll þurrefnin í skál og hrærið svo vökvanum vel saman við.
- Setjið inn í ofn á bökunarpappír eða beint á hreina bökunarplötu og ristið á 150 gráðum í 25-35 mínútur. Passið að hræra vel í granólanu nokkrum sinnum svo að það ristist jafnt.
- Eftir að granólað er komið úr ofninum, blandið þá 1 dl af þurrkuðum trönuberjum og 1 dl af ristuðum kókosflögum saman við.