Trylltur nachos-hamborgari sem rífur í

Ljósmynd/Eyþór Rúnarsson

Eyþór kokkur startar helginni fyrir okkur með þessum ómótstæðilega nachos-hamborgara með pico de gallo og Mexíkó-ostadressingu. Hér vantar bara einn ískaldan öl með og helgin er fullkomnuð!

Geggjaður nachos-borgari með ostadressingu

  • u.þ.b. 550-600 g nautahakk
  • 1 tsk. cumin
  • 1 tsk. sambal oelek
  • 70 g mulið nachos
  • ½ Mexíkó-ostur
  • 1 msk. sjávarsalt
  • 4 ostsneiðar eða rifinn ostur
  • 4 stk. hamborgarabrauð

Pico di gallo

  • 1 box sólskinstómatar (250 g)
  • 2 msk. fínt skorin rauðlaukur
  • 1 msk. fínt skorið rautt chili
  • 1/3 bréf kóríander gróft saxað
  • 1 tsk. flórsykur
  • ½ lime (fínt rifinn börkur og safi)
  • 2 msk. ólífuolía
  • Sjávarsalt

Ostadressing

  • ½ Mexíkó-ostur
  • 1 dós 18% sýrður rjómi  (180 g)
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ½ lime (safinn og börkurinn)
  • 1 tsk. hlynsíróp

Aðferð:

  1. Myljið nachosið niður í skál með höndunum. Rífið ostinn niður með rifjárni og setjið út í skálina og bætið öll hinu hráefninu út í. Blandið öllu vel saman með höndunum. Skiptið blöndunni upp í 4 hluta og mótið í fjóra hamborgara u.þ.b.150 gr. hvern fyrir sig.
  2. Hitið grillið og grillið hamborgarana í 4 mín. á hvorri hlið. Setjið ostinn á borgarana í lokin og takið þá af þegar osturinn er bráðinn.

Pico di gallo:

  1. Setjið rauðlaukinn í skál ásamt flórsykrinum og hrærið vel saman, látið rauðlaukinn svo standa í 10 min.
  2. Skerið hvern tómat í 8 bita og setjið þá í skálina með rauðlauknum. Bætið chili, kóríander, lime-safa og ólífuolíunni út í skálina og hrærið öllu vel saman og smakkið til með saltinu.

Ostadressing:

  1. Rífið ostinn niður með rifjárni og setjið í skál með sýrða rjómanum, bætið hvítlauknum, fínt rifnum lime-berkinum og lime-safanum út í ásamt hlynsírópinu og smakkið til með saltinu í lokin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert