Trixin til að eggin verði fullkomin

Nýsoðin egg eru frábær morgunmatur.
Nýsoðin egg eru frábær morgunmatur. mbl.is/bowlofdelicious.com

Fullt hús mat­ar - eru svo sann­ar­lega orð að sönnu. En hvernig verða egg­in full­kom­lega soðin?

Notaðu lokið
Ef þú eld­ar sex egg eða færri, þá þarftu ekki meira en 1/​2 dl af vanti í pott­inn. Hins­veg­ar er mik­il­vægt að sjóða egg­in með lokið þétt á svo guf­an úr vatn­inu fari ekki út - þannig trygg­ir þú að eggja­hvít­an verði full­kom­lega þétt í sér. 

Hversu lengi á egg að sjóða?

  • Harðsoðið egg: 9 mín­út­ur við lág­an hita. 
  • Mjúkt egg: 7 mín­út­ur við lág­an hita. 
  • Lin­soðið egg: 5 mín­út­ur við lág­an hita. 
  • Ef egg­in eru lít­il máttu draga frá 1 mín­útu við hvern suðutíma. Og sama gild­ir ef egg­in séu stór, þá máttu bæta við 1 mín­útu á suðutím­ann.
  • Gott ráð er að taka egg úr ís­skápn­um tíu mín­út­um áður en þú ætl­ar þér að elda það. Þar með fá egg­in ekki 'hita­sjokk' og hætt­an á því að skel­in brotni við eld­un er því minni. 
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert