Stundum þarf ekkert að flækja hlutina. Við erum með kjúkling og svo sósu sem tryllir mannskapinn... eða allavega matargesti. Við erum að tala um rjómalagaða bernaise-sósu og við skorum á ykkur að smakka. Það eru nefnilega töluverðar líkur á að þetta verði næsti uppáhalds kjúklingarétturinn ykkar.
Kjúklingur með rjómabernaisesósu
Fyrir fjóra
- 4 stk. kjúklingabringur
- 2 msk. smjör til steikingar
- 500 ml matreiðslurjómi frá Gott í matinn
- 2 msk. dijon sinnep
- 4 tsk. estragon
- 4 tsk. bernaise essens
- 2 msk. kjúklingakraftur (1 teningur)
- sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Tillaga að meðlæti
- hrísgrjón, steikt eða ferskt grænmeti og heitt snittubrauð
Aðferð:
- Hitaðu ofninn í 200°C.
- Brúnaðu kjúklinginn í smjöri á báðum hliðum.
- Kryddaðu með sjávarsalti og nýmöluðum pipar.
- Settu kjúklinginn í eldfast mót og bakaðu í 20 mínútur í ofni þar til hann er fulleldaður.
- Helltu matreiðslurjóma í djúpa pönnu, síðan sinnepi, estragoni, kjúklingakrafti og bernaise essens.
- Hitaðu upp að suðu, settu kjúklinginn út í og leyfðu að malla í 5 mínútur við lágan hita.
- Berðu réttinn fram með hrísgrjónum, steiktu eða fersku grænmeti og heitu snittubrauði.