Helgarmaturinn er handan við hornið og sjálfsagt margir sem ætla að bjóa upp á dýrindis lambalæri samkvæmt venju. Hér erum við með uppskrift þar sem notaður er hunangsgljái sem inniheldur jafnframt dijon-sinnep, ferskt rósmarín og timían-greinar. Í okkar huga er þetta blanda sem getur ekki klikkað og við hvetjum ykkur til að prófa.
Ofnbakað úrbeinað lambalæri
- 1,5 kg úrbeinað lambalæri
- ½ dl olía
- 1 ½ msk. hunang
- 1 tsk. dijon-sinnep
- 3 tímíangreinar, laufin tínd af
- 3 ferskar rósmaríngreinar, nálar tíndar af og saxaðar
- 1 msk. oregano
- 1 tsk. hvítlauksduft
- 2 tsk. salt
- 1 ½ nýmalaður svartur pipar
- 1 hvítlaukur, skorinn þvert í tvo hluta
Bakað rótargrænmeti og laukur
- 6 gulrætur, skrældar
- 3 rauðlaukar, skornir til helminga
- 1 sellerírót, skræld og skorin í grófa bita
Leiðbeiningar
Ofnbakað lambalæri
- Hitið ofn í 180°C. Blandið olíu, hunangi, sinnepi og kryddi saman í skál og smyrjið á lærið. Notið hendur og makið vel á allt lærið, ekki er verra ef lærið fær að marinerast í ísskáp í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt en þess þarf ekki.
- Setjið lærið í ofn og bakið í um það bil klukkustund. Ausið soðinu yfir nokkrum sinnum á meðan eldun stendur yfir. Takið lærið út og látið jafna sig á borði í 15 mínútur og hafið álpappír yfir á meðan.
Bakað rótargrænmeti og laukur
- Setjið í eldfast mót ásamt 100 g af smjöri, saltið og piprið og eldið í ofninum samhliða lærinu. Má líka hafa grænmetið í sömu ofnskúffu og lærið.
- Þegar lærið er tekið úr ofninum og hvílir á borðinu skal hækka hitann á grænmetinu í 200°C og elda í 15 mínútur til viðbótar eða meðan kjötið hvílir.
- Berið fram með grænmetinu, bökuðum eða grilluðum kartöflum og góðri soðsósu.