Heilsukokkurinn Kristjana Steingrímsdóttir bjó lengi í Lúxemborg en er nú flutt til Íslands. Í meira en áratug hefur hún haldið vinsæl matreiðslunámskeið þar sem hollustan er í forgrunni. Hún töfraði fram grillað páskalamb ásamt gómsætu meðlæti.
Grillað lambafilet með kryddjurtapestói
Kryddjurtapestó
- 1,5 dl ólífuolía
- 1 búnt basilíka (um 20 g)
- ½ búnt steinselja (um 10 g)
- ½ búnt timían (um 10 g)
- ½ búnt mynta (um 10 g)
- 2 msk. léttristaðar kasjúhnetur
- safi og börkur af hálfri sítrónu
- 1 msk. hunang
- ½ tsk. pipar
- 1 tsk. salt
Aðferð
- Setjið allt fyrir kryddjurtapestóið í matvinnsluvél og maukið vel.
- Setjið um það bil þrjár matskeiðar af pestói á kjötið og látið marinerast í um það bil eina klukkustund.
- Grillið kjötið á heitu grilli í 2-3 mínútur á hvorri hlið eða aðeins lengur ef þið viljið hafa það meira eldað.
- Berið lambið fram með grilluðu graskerssalati og mangó-salsa og afganginum af pestóinu.
Hér má sjá lambakjötið með pestói áður en það var eldað.
Ljósmynd/Kristjana Steingrímsdóttir
Graskerssalat með salatosti og döðlum
- 1 grasker (butternut squash), fræhreinsað og saxað í litla bita
- smá ólífuolía
- salt og pipar eftir smekk
- 1 msk. rótargrænmetiskryddblanda frá Kryddhúsinu
- 1 box af grænu salati
- handfylli af klettasalati
- 1 krukka salatostur
- 4 msk. þurrkuð trönuber
- nokkrar greinar timían
- 10 stykki steinlausar döðlur skornar í litla bita
- 1-2 msk góð ólífuolía
Aðferð
- Setjið graskerið á bökunarplötu og skvettið yfir smá olífuolíu, salti, pipar og rótargrænmetiskryddblöndu frá Kryddhúsinu.
- Bakið í 180° heitum ofni í 25-30 mínútur.
- Takið út og kælið í nokkrar mínútur.
- Setjið salatið á disk, því næst bökuðu graskersbitana, salatost, trönuber, timían, döðlur og ólífuolíu.
Ljósmynd/Kristjana Steingrímsdóttir
Ananas-carpaccio
- ¼ ananas
- ½ límóna, safi og rifinn börkur
- nokkur vínber eða bláber
- 1/6 ferskur chili skorinn í þunnar sneiðar
- 3 cm engiferrót rifin
- smá kóríander gróft saxað
- smá sprettur til skrauts
- salt og pipar
- skvetta af sítrónuolíu
Aðferð
- Skerið ysta lagið af ananasinum og skerið svo í þunnar sneiðar og raðið á stórt fat/disk.
- Rífið börkinn af límónunni og kreistið safann yfir ananassneiðarnar.
- Rífið engiferrót yfir allt og stráið berjum, chilisneiðum og kóríander yfir.
- Því næst smá salt, pipar og sítrónuolía.