Kristjana Steingrímsdóttir deilir uppskrift af girnilegum morgungraut.
Ljósmynd/Samsett
Kristjana Steingrímsdóttir heilsukokkur á heiðurinn af einstaklega ljúffengum chia-graut með eplum, kanil, vanillu og möndluflögum. Hún deildi uppskriftinni á Instagram-síðu sinni.
Dásamlegur eplagrautur
- 1 msk. chia-fræ
- 1 1/2 bollar kókós/möndlu/ haframjólk
- 1/2 bolli eplamauk
- 1 rifið epli
- 1 tsk. vanilla
- 1 tsk. kanill
- 1 msk. möndluflögur
Aðferð:
- Öllu hrært saman og geymt í lokuðu íláti yfir nótt.
- Frábært að toppa með nokkrum valhnetum/pekanhnetum, döðlum og trönuberjum.