Púrrulauksídýfan sem Íslendingar dýrka

Dýrðleg þessi holla og góða púrrulauks ídýfa.
Dýrðleg þessi holla og góða púrrulauks ídýfa. Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Hver man ekki eftir frægu púrrulaukssúpunni frá Toro? Hún er algjör nostalgía og margir eiga góðar minningar um að hafa bragðað ídýfu þar sem hún er í forgrunni. Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir, sælkeri og matarbloggari sem heldur úti síðunni Döðlur og smjör, á góðar minningar um púrrulauksídýfuna góðu og rifjaði upp á dögunum uppskriftina að þessari snilldarídýfu sem er skotheld í næsta partí.

„Málið er nefnilega að það þarf ekki alltaf að finna upp hjólið. Heldur er líka frábært að horfa til þess sem er gott og hefur reynst vel og það er nákvæmlega það sem þessi ídýfa er,“ segir Guðrún Ýr.

Það varð heldur betur uppi fótur og fit þegar Toro í Noregi ætlaði að hætta framleiðslu á púrrulaukssúpunni sinni. Mótmælt var frá litla Íslandi sem gerði það að verkum varan fór í sölu á ný. Hér er um að ræða algjöra snilld. Íslendingar nota hana mikið í kjötbollugerð, sérstaklega þegar veislur skal halda og svo klassísku ídýfuna. Þessa verðið þið að prófa.

Púrrulauksídýfa

  • 1 dós sýrður rjómi
  • ½ pk púrrulaukssúpa frá Toro
  • 2-3 msk. AB mjólk / súrmjólk 

Aðferð: 

1. Blandið öllu saman og hrærið vel, bætið AB mjólk í eftir því hversu þykka ídýfu þið viljið.

2. Setjið í skál eða box með loki og gott er að geyma ídýfuna í kæli í minnst 2-3 klukkustundir til að leyfa henni að taka sig.

3. Berið fram með snakki, saltstöngum, niðurskornu grænmeti líkt og gúrku, gulrót, brokkolí, blómkáli eða papriku eða með grillmatnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert