Við árbakka Thames árinnar í London er hið stórglæsilega Hótel Shangri-La the Shard. Veitingastaðurinn Tîng er staðsettur á 35. hæð hótelsins þar sem gestir geta notið þess að upplifa og horfa yfir bakka Thames árinnar og London samhliða því að njóta góðra veiga og rétta.
Uppskrift að góðum degi, getur verið ævintýralegt útsýni, lúxusveitingar í glæsilegu umhverfi með kampavíni við hönd á 5 stjörnu lúxushóteli. Þú mætir í fyrir fram pantaðan tíma sem hægt er að bóka auðveldlega á netinu þar sem framundan er stórkostlegt síðdegiste. Í boði er úrval af ljúffengum fingrasamlokum, heitum nýbökuðum skonsum og sætmeti. Þarna er hægt að upplifa ógleymanlegt útsýni með kældu glasi af kampavíni við hönd.