Galdrar fram þjóðhátíðarkokteilinn í ár

Sævar Helgi Örnólfsson galdrar fram þjóðhátíðarkokteilinn í ár á sinn …
Sævar Helgi Örnólfsson galdrar fram þjóðhátíðarkokteilinn í ár á sinn listræna og fallega hátt. mbl.is/Hákon Pálsson

Sævar Helgi Örnólfsson barþjónn á Tipsý bar & lounge, sem sigraði íslensku Graham’s Blend Series kokteilkeppnina í mars síðastliðnum, galdrar hér fram þjóðarhátíðarkokteilinn í ár sem á eftir að töfra gestina upp úr skónum. Sævar er einstaklega laginn við að finna réttu samsetninguna og koma með rétta bragðið. Það er líka svo gaman að sjá hvernig hann leikur sér með íslenskt hráefni við kokteilagerðina og gerir því hátt undir höfði.

Fyrst þegar ég hugsaði um 17. júní kokteil þá hugsaði ég auðvitað um það að gera lagskiptan kokteil sem er á litinn eins og íslenski fáninn. Mér fannst það síðan hljóma mun betur að gera kokteil sem öskrar íslenskt sumar með hráefnum sem eru auðveld fyrir okkur öll til að nálgast svo allir heima geti búið hann til. Útkoman er fallega rauðbleikur drykkur sem er svo ljúfur á bragðið að maður getur ekkert annað sagt en vá, ja eða , , jibbí, jei,“ segir Sævar sem er kominn í hátíðarstuð.

, hó og jibbí jei kokteillinn

  • 45 ml Rabarbara líkjör frá RVK distillery
  • 20 ml Angelica gin frá RVK distillery
  • 5 ml Campari
  • 30 ml sítrónusafi
  • 15 ml fífilssíróp frá Erpsstöðum
  • 1 jarðaber frá Flúðum
  • Eggjahvíta
  • Klakar eftir smekk til að setja í glasið 

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í kokteilhristara fyrir utan jarðarberið.
  2. Hristið drykkinn ofan í lágt glas með klökum.
  3. Skreytið með hálfu jarðarberi fyrir góðan ilm.
Þjóðhátíðarkokteillinn í ár, Hæ, hó, jibbí, jei, er fallegur í …
Þjóðhátíðarkokteillinn í ár, Hæ, hó, jibbí, jei, er fallegur í glasi, skreyttur með íslensku jarðarberi. mbl.is/Hákon Pálsson
Kokteill sem öskrar íslenskt sumar með hráefnum sem eru auðveld …
Kokteill sem öskrar íslenskt sumar með hráefnum sem eru auðveld fyrir alla að nálgast svo að allir heima geti búið hann til. Útkoman er fallega rauð/bleikur drykkur sem er ljúfur á bragðið. mbl.is/Hákon Pálsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert