Flottustu pikknikk körfur landsins

Fátt skemmtilegra en að taka með pikknikk körfuna fulla af …
Fátt skemmtilegra en að taka með pikknikk körfuna fulla af ljúffengu nesti og kræsingum í ferðalagið og lautarferðina. Samsett mynd

Nú fer í hönd tími ferðalagana innanlands og framundan í næstu viku er stærsta ferðahelgi ársins. Þá er fátt skemmtilegra en að taka með sér pikknikk körfuna fulla af ljúffengu nesti og kræsingum í ferðalagið eða lautarferðina. Matarvefurinn fór aðeins á stúfana til að skoða úrvalið og framboð af pikknikk körfum sem eru í boði í lífstílsverslunum hérlendis. Við fundum nokkrar pikknikk körfur og töskur sem smellpassa í ferðalagið, veiðiferðina, lautarferðina eða hvaðeina sem fólki langar að gera og taka með sér í spennandi pikknikk og gera sér glaðan dag.

Hér má sjá brot af því sem við fundum:

Stílhrein og falleg pikknikk karfa úr tauefni.
Stílhrein og falleg pikknikk karfa úr tauefni. Ljósmynd/Snúran

Í verslunni Snúrunni er þessi skemmtilega pikknikk karfa sem ber heitið City Cooler og er til í bæði í beige og svörtum lit. Hér er á ferðinni stílhrein og nútímaleg pikknikk karfa. Karfan er úr Picnic línunni frá Sagaform. Karfan er með kælihólfi og hentar því vel til að halda mat og drykkjum köldum. Svo er hægt að brjóta töskuna auðveldlega saman þegar hún er ekki í notkun.

Körfuna er hægt að fá í tveimur litum beigie og …
Körfuna er hægt að fá í tveimur litum beigie og svörtu. Ljósmynd/Snúran

Verð 7.390 krónur.

Klassískar og fallegar körfurnar og fara vel hvar sem er.
Klassískar og fallegar körfurnar og fara vel hvar sem er. Ljósmynd/Söstrene grene

Í Sostrene grene  fást þessar opnu pikknikk körfur með handfangi. Þær eru einfaldar og þægilegar í notkun. Hægt er að skreyta þær með litlu dúkum eða klútum og gera þær krúttlegar með smá skreytingu.

Gaman að fylla þessar körfur af kræsingum.
Gaman að fylla þessar körfur af kræsingum. Ljósmynd/Söstrene grene

Verð 4.280 krónur.    

Einfaldleikinn í fyrirrúmi.
Einfaldleikinn í fyrirrúmi. Ljósmynd/Söstrene grene

Verð 2.998 krónur.

Hér er á ferðinni gerðarleg og vel útbúin pikknikk karfa. …
Hér er á ferðinni gerðarleg og vel útbúin pikknikk karfa. Algjör nostalgía og minnir á gamla tímann. Ljósmynd/Bakó Ísberg

Þessi vel útbúna og veglega pikknikk karfa er fáanleg í Bako Ísberg. Karfan fyrir útbúin fyrir fjóra og henni fylgja fjögur plastglös á fæti, fjórir matardiskar, hnífapör fyrir fjóra, salt og pipar staukar og flöskuupptakari. Hún er brún á litin og með brúnu köflóttu fóðri að innan sem er táknrænt fyrir pikknikk körfu í lautarferð þar sem sveitarómantíkin svífur yfir.

Verð 15.920 krónur.

Þessi pikknikk karfa er með kælihólfi sem kemur sér vel …
Þessi pikknikk karfa er með kælihólfi sem kemur sér vel á heitum sólardögum. Ljósmynd/Bakó Ísberg

Einnig er þessa að finna í Bakó Ísberg. Hér er vönduðu pikknikk karfa frá Cozy & Trendy. Karfan fyrir útbúin fyrir fjóra og henni fylgja fjögur plastglös á fæti, fjórir matardiskar, hnífapör fyrir fjóra, salt og pipar staukar og flöskuupptakari. Hún er með rauðu fóðri að innan sem er líka táknrænt fyrir pikknikk körfu í lautarferð þar sem sveitarómantíkin svífur yfir. Hún er einnig með einangrað kælihólf með rennilás.

Verð 19.920 krónur.

Falleg pikknikk karfa úr basti með loki og góðu rými …
Falleg pikknikk karfa úr basti með loki og góðu rými fyrir nestið. Ljósmynd/Purkhús

Purkhús býður upp á þessa skemmtilegu pikknikk körfu úr basti frá Bloomingville sem er hægt að hafa lokað og hugsað er fyrir notagildinu. Falleg í útliti og minnir á rómantíkina.

Verð 15.990 krónur.

Klassísk pikknikk karfa úr basti sem nýtur sín vel í …
Klassísk pikknikk karfa úr basti sem nýtur sín vel í lautarferðina. Ljósmynd/Rúmfatalagerinn

Í Rúmfatalagerinum er að finna þessa klassísku og einföldu Brage körfu sem er á fínu verði.

Verð 3.995 krónur.

Einföld pikknikk karfa í fallegum beige lit.
Einföld pikknikk karfa í fallegum beige lit. Ljósmynd/Rúmfatalagerinn

Einnig er þar að finna þessa kælitösku sem ber heitið Myra og fæst í beige lit.

Verð 3.995 krónur.

Bast karfa með hólfi og álhandfangi.
Bast karfa með hólfi og álhandfangi. Ljósmynd/Home & you

Home & you Lillen býður upp á þessa fallegu pikknikk körfu með handfangi úr áli kemur vel út.

Verð 8.990 krónur. 

Í Fakó er hægt að fá þessu fallegu kælitösku í hermannagrænum lit. Hún nýtist vel sem pikknikk taska og heldur kræsingunum sem og drykkjum köldum.

Verð 5.600 krónur

Hér er búið að sameina fagurfræðina og notagildið. Kælitaska sem …
Hér er búið að sameina fagurfræðina og notagildið. Kælitaska sem er þægilegt að ferðast með. Ljósmynd/Fakó
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert